Vorhús – Fjallasýn Ferðamál 250ml Gult
4.290 kr.
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir stofnaði Vorhús upprunalega árið 2007 og seldi um árabil hönnunarvörur undir eigin nafni með góðum árangri. Samhliða auknum vexti erlendis og því að fleiri hönnuðir komu að vöruþróun fyrirtækisins var ákveðið að víkka út starfsemina í hönnunarhús. Í framhaldinu var nafni fyrirtækisins breytt í Vorhús eftir gömlu húsi á Eyrarbakka sem langamma Sveinbjargar átti. Nafnið vísar til vorsins þegar ungar fæðast, gróður grænkar og líf færist í móana og er litrík náttúran og fjölbreytileiki hennar innblástur fyrirtækisins. Stefna Vorhús er að skapa fallegar vörur úr fjölbreyttum efnivið og að vera staður þar sem hönnuðir skapa fyrir framtíðina.
Ferðamálin eru ein vinsælasta vara fyrirtækisins en þau er úr tvöföldu postulíni sem heldur vel heitu en hitnar ekki í gegn. Sílíkonlok er á málinu sem gott er að drekka úr svo þau eru tilvalin til að hafa með sér á ferðinni. Málin eru skreytt íslenskum fjöllum og nöfn þeirra má sjá á umbúðunum.
Framboð: 2 á lager