Soy Witch Ilmkerti 250 ml Christmas Tree

2.990 kr.

Pólska fyrirtækið Soy Witch er í eigu Joanna Humerczyk og Szymon Wieczorek og framleiða þau ilmkerti sem sameina tvö áhugasvið þeirra – veganisma og vistfræði. Ilmkertin eru handgerð í verksmiðju í Łazarz í Poznań, Póllandi, úr náttúrulegu sojavaxi og vottuðum ilmolíum. Sojavax er unnið úr sojabaunum og þ.a.l. 100% vegan, non-toxic, og ekki skaðleg heilsu okkar. Vaxið bráðnar við við 50°c hita sem gerir það öruggara í notkun, ásamt því að brenna allt að 250% lengur en hefðbundin kerti úr paraffín vaxi.

 

Við fyrstu notkun ætti kertið að loga í um 3 klukkustundir til að tryggja að eins konar “göng” myndist ekki ofan í kertið. Ef göngin myndast brennur kertið ekki jafnt og ekki verður hægt að brenna hvern dropa vaxsins. Einnig skal klippa kveikinn eftir hverja notkun svo hann skagi ekki meira en 0,5cm upp fyrir yfirborð kertisins. Þannig mun kertið loga fallega og loginn verður ekki of stór. Kertin koma í fallegum, látlausum krukkum, þar sem engar óþarfa pakkingar eða plast er notað.

Brennslutími: U.þ.b. 40 klst

100% Soyavax

V: 250 ml

 

Soy Witch Ilmkerti 250 ml Christmas Tree.  Ilmurinn er af villiberjum og grenitrjám. Mjög vetrarlegur og jólalegur ilmur. Tilvalið ilmkerti í jólapakkann!

Framboð: 2 á lager

Dúka Kringlan: Uppselt
Dúka Smáralind: Uppselt
Vefverslun: Á lager
Vörunúmer: 968-swr250-06 Vöruflokkar: , , , , , , Vörumerki:
Scroll to Top