Ritzenhoff – Herzkristall Hvítvínsglas
2.950 kr.
2.360 kr.
Þýska fyrirtækið Ritzenhoff byrjaði sem lítið fjölskyldurekið fyrirtæki í byrjun 20. aldarinnar þar sem framleidd voru hágæða kristalsglös í verksmiðju Ritzenhoff í Sauerland. Fyrirtækið hefur þróast í að verða eitt af þekktustu glerframleiðendum Þýskalands en allar vörur þeirra eru hannaðar, þróaðar og framleiddar í nánu samstarfi við hina ýmsu hönnuði sem myndskreyta glösin eftir sínu höfði. Öll glösin eru framleidd í Þýskalandi undir ströngu eftirliti til að tryggja gæði og fullkomna lokaútkomu.
Hvítvínsglasið kemur í fallegum gjafaumbúðum og hægt er að fá rauðvínsglas í stíl með sama, fallega mynstrinu. Glösin skal handþvo.
H: 22,5 cm, Ø: 7,3 cm, V: 364 ml