Ritzenhoff – Schattenfauna Gin Glös á Fæti 2stk
4.590 kr.
Þýska fyrirtækið Ritzenhoff byrjaði sem lítið fjölskyldurekið fyrirtæki í byrjun 20. aldarinnar þar sem framleidd voru hágæða kristalsglös í verksmiðju Ritzenhoff í Sauerland. Fyrirtækið hefur þróast í að verða eitt af þekktustu glerframleiðendum Þýskalands en allar vörur þeirra eru hannaðar, þróaðar og framleiddar í nánu samstarfi við hina ýmsu hönnuði sem myndskreyta glösin eftir sínu höfði. Öll glösin eru framleidd í Þýskalandi undir ströngu eftirliti til að tryggja gæði og fullkomna lokaútkomu.
Gin glösin koma tvö saman í fallegum gjafaumbúðum og hægt er að fá glös sem eru ekki á fæti í stíl. Glösin þola uppþvottavél en mælum við með handþvotti til að varðveita myndskreytingarnar.
H: 21,8 cm, Ø: 10,7 cm, V: 720 ml
Vörunúmer:
369100
Vöruflokkar: Borðbúnaður, Gjafahugmyndir, Glös, Kokteilglös, Nýjar Vörur
Vörumerki: Ritzenhoff