Ritzenhoff – Fjordlicht Rauðvínsglös 2stk
4.490 kr.
Þýska fyrirtækið Ritzenhoff byrjaði sem lítið fjölskyldurekið fyrirtæki í byrjun 20. aldarinnar þar sem framleidd voru hágæða kristalsglös í verksmiðju Ritzenhoff í Sauerland. Fyrirtækið hefur þróast í að verða eitt af þekktustu glerframleiðendum Þýskalands en allar vörur þeirra eru hannaðar, þróaðar og framleiddar í nánu samstarfi við hina ýmsu hönnuði sem myndskreyta glösin eftir sínu höfði. Öll glösin eru framleidd í Þýskalandi undir ströngu eftirliti til að tryggja gæði og fullkomna lokaútkomu.
Fjordlicht línan samanstendur af rauðvíns-, hvítvíns-, og vatnsglösum í fjórum fallegum litum. Glösin þola uppþvottavél.
H: 23,6 cm, Ø: 9,4 cm, V: 570 ml
Vörunúmer:
363100
Vöruflokkar: Borðbúnaður, Gjafahugmyndir, Glös, Nýjar Vörur, Rauðvínsglös
Vörumerki: Ritzenhoff