Kartell – Jellies Oval Framreiðsludiskur 36,5cm

8.490 kr.

Ítalska fyrirtækið Kartell stofnuðu hjónin Anna Castelli Ferrieri og Guilio Castelli árið 1949 í Mílanó. Upprunalega ætluðu þau aðeins að framleiða aukahluti fyrir bíla og aðrar smávörur úr plasti en árið 1958 hóf fyrirtækið að framleiða ljósabúnað og síðar húsgögn. Árið 1988 gáfu þau fyrirtækið tengdasyni sínum, Claudio Luti, sem hafði bakgrunn í fatahönnun og tísku. Claudio hafði áður starfað hjá Versace og með ást á fullkomnun og smekklegri hönnun varð þetta nýtt upphaf Kartell. Hann leitaði eftir samstarfi við hönnuði og arkítekta, eins og Philippe Starck, Ferruccio Laviani, Patricia Urquiola o.fl., en þau hafa hannað vörur fyrir fyrirtækið sem í dag eru einkenni Kartell.

Jellies er heilstæð lína diska, glasa, skála, karafla, bolla og annars konar borðbúnaðar. Patricia Urquiola hannaði Jellies línuna með það í huga að hægt væri að nota hana utandyra jafnt sem innandyra. Línan er úr plasti og er því tilvalin í húsbílinn, hjólhýsið, sumarbústaðin, á veröndina og inn á heimili barnafjölskyldna.

Scroll to Top