Kartell – GE’ Loftljós
43.900 kr.
Ítalska fyrirtækið Kartell stofnuðu hjónin Anna Castelli Ferrieri og Guilio Castelli árið 1949 í Mílanó. Upprunalega ætluðu þau aðeins að framleiða aukahluti fyrir bíla og aðrar smávörur úr plasti en árið 1958 hóf fyrirtækið að framleiða ljósabúnað og síðar húsgögn. Árið 1988 gáfu þau fyrirtækið tengdasyni sínum, Claudio Luti, sem hafði bakgrunn í fatahönnun og tísku. Claudio hafði áður starfað hjá Versace og með ást á fullkomnun og smekklegri hönnun varð þetta nýtt upphaf Kartell. Hann leitaði eftir samstarfi við hönnuði og arkítekta, eins og Philippe Starck, Ferruccio Laviani, Patricia Urquiola o.fl., en þau hafa hannað vörur fyrir fyrirtækið sem í dag eru einkenni Kartell.
Hönnuður GE’ loftljóssinn er heimsfrægi listamaðurinn Ferruccio Laviani sem hefur hannað ótalmargar vinsælar vörur fyrir Kartell, m.a. Bourgie lampann. Ljósið kemur í ýmsum litum og er tilvalið fyrir ofan stofu- eða eldhúsborðið.
Ø: 37 cm, H: 26 cm , L snúru: 45-230 cm
220-240 v
Perustæði E27
12W LED pera fylgir