Frandsen – Ball Loftljós 40cm White Matt
59.900 kr. 29.950 kr.
Danska fyrirtækið Frandsen stofnaði Benny Frandsen í kjallaranum á heimili sínu árið 1968 eftir að hafa hannað og smíðað fyrsta Ball ljósið. Síðan þá hefur fyrirtækið stækkað og þróast ört og í dag vinnur Frandsen í samstarfi við hina ýmsu hönnuði og einblýnir á að skapa hágæða ljós og lampa fyrir einstaklinga og fyrirtæki víðs vegar um heiminn.
Ball línan inniheldur án efa vinsælustu ljós fyrirtækisins enda var fyrirtækið stofnað í kring um þessa klassísku og tímalausu hönnun. Loftljós í nokkrum stærðum, veggljós í tveimur útfærslum, gólf- og borðlampa má finna í Ball línunni í mörgum fallegum litum.
Loftljósin voru upprunalega aðeins framleidd í brúnum og appelsínugulum tónum til að passa inn á dönsk heimili á áttunda áratugnum. Eftir því sem árin liðu og tískustraumarnir breyttust hóf Frandsen framleiðslu á ljósunum í hinum ýmsu litum svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Ø: 40 cm
Framboð: 1 á lager
Tengdar vörur
-
-
17.900 kr. – 21.900 kr.
8.950 kr. – 10.950 kr. -