Design Letters – Hnífaparasett 4stk
4.690 kr.
Design Letters er danskt fyrirtæki sem hefur verið starfsrækt síðan árið 2009. Markmið fyrirtækisins er að framleiða hágæða vörur með mottóið ,,Make it Personal” að leiðarljósi. Leturgerð Arne Jacobssen hefur Design Letters notað til að skreyta vörur sínar um árabil en hönnun Arne á rætur sínar að rekja til ársins 1937. Design Letters framleiðir ótal vörur sem margir þekkja, til dæmis stafakrúsirnar, en fyrirtækið er þó í stöðugri vöruhönnun og framleiðir nú skartgripalínu, mikið úrval af barnavörum og aðra muni sem fegra heimilið.
Hnífapörin eru úr bpa fríu tritan plasti sem hefur sterka eiginleika og hentar þess vegna einkum vel litlum höndum. Hnífaparasettið kemur í fallegri gjafaöskju og er þess vegna vinsæl skírnar-, sængur- og afmælisgjöf fyrir krílið. Tritan plastið þolir örbylgjuofn og uppþvottavél.