Bialetti – Musa Span Mokkakanna

6.590 kr.9.990 kr.

Musa mokkakannan er fullkomin gjöf fyrir þá sem elska kaffi. Musa týpan er hönnuð fyrir allar tegundir helluborða, líka spanhelluborð. Það var árið 1933 sem ítalski verkfræðingurinn Alfonso Bialetti hannaði hina byltingakenndu mokkakönnu og varð fyrirtækið í kjölfarið einn fremsti ítalski framleiðandi á kaffivélum. Mokkakannan breytti því hvernig fólk drakk kaffi og hafði gífurleg áhrif á ítalska kaffimenningu en ekki leið á löngu þar til kannan hafði dreift sér á heimili um allan heim. Ítalska mokkakannan virkar þannig að vatn er sett í botninn á henni og kaffið í sérstakt hólf að ofan. Við suðu mun vatnið eimast í gegnum kaffikorginn og safnast fyrir í efra hólfi könnunar.

Bialetti Musa kaffikannan kemur í þrem stærðum, sem  4 bolla, 6 bolla og 10 bolla mokkakanna. Stundum getur verið vandi að velja stærð á könnu en þá er gott að miða við að 4 bolla mokkakannan er flott fyrir einn eða tvo að deila en 6 bolla kannan er flott fyrir tvo til þrjá að deila. Bollastærðin er neflilega miðuð út frá espresso stærð en espresso bollar eru um 10 cl að stærð. Hefðbundni ”íslenski” morgunbollinn er töluvert stærri. Best er að handþvo könnuna með heitu vatni.

150 ml / 225 ml / 430 ml

Vörunúmer: 2-000427 Vöruflokkar: , , , Vörumerki:
Scroll to Top